Orðalisti
Ákæruvaldið
Ákæruvaldið er í höndum ríkissaksóknara, héraðssaksóknara og lögreglustjóra, að undanskildum ríkislögreglustjóra. Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds og fer í samræmi við það með eftirlit og leiðsögn yfir héraðssaksóknara og lögreglustjórum.
Hlutverk ákæruvaldsins, í
samvinnu við lögreglu, er að tryggja að þeir sem fremja afbrot verði beittir lögmæltum
viðurlögum.